Vegna þeirra aðstæðna sem nú ríkja á Íslandi hefur eftirspurn eftir ráðgjöf tengdri gjaldþrotum og afleiðingum þeirra aukist verulega.
Hjá ATOZ starfa sérfræðingar sem hafa víðtæka þekkingu og reynslu af gjaldþrotamálum - allt frá því hvernig ferlið gengur fyrir sig og hvaða afleiðingar það hefur. Í hugum margra er orðið gjaldþrot eitt og sér skelfiilegt og vissulega hefur gjaldþrot ýmsar afleiðingar og eftirmála í för með sér. En gjaldþrot er ekki heimsendir og þeir eru fjölmargir sem hafa orðið gjaldþrota en lifa góðu lífi þrátt fyrir það.
ATOZ býður upp á alhliða ráðgjöf varðandi gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja. Ráðgjöfin er sniðin að þörfum hvers og eins og þá hvort sem snýr að því að afstýra gjaldþroti eða að því hvernig haga á málum við og eftir gjaldþrot.