06. September 2010

Lífeyrisþegar og fjárglæframenn!

Nú dynja yfir okkar fréttir af því mikla fjárhagslega tjóni sem orðið hefur á Íslandi. Fjölmiðlar keppast við að finna að greina frá himinháum tölum, upphæðum sem erfitt er að skilja. En svona til glöggvunar er 1 milljarður u.þ.b. 3.000 kr. á hvern Íslending ef við gefum okkur að við séum 330.000. En að LÍFEYRISÞEGUM. Orðið sem sumir fjölmiðlar kjósa að nota um þá sem fá sitt eigið fé til baka úr lífeyrissjóðum. Í mínum huga er þetta lýsandi fyrir það ástand sem myndaðist í þjóðfélaginu að eigendum sjóðana er lýst sem þegum líkt og bótaþegum eða öðrum sem hafa e.t.v. ekki í öllum tilfellum greitt jafn mikið í sjóðina og þeir fá úr þeim. Þegar um lífeyrissjóði er að ræða er orðið LÍFEYRISÞEGI ekki gott orð. Það er hvorki lýsandi né skýrt. Það sem er hins vegar alveg skýrt og ljóst er að við öll sem greitt höfum í lífeyrissjóð erum verr sett en áður í besta falli vegna aðgerða nokkurra fjárhættuspilara og í versta falli vegna aðgerða og/eða aðgerðarleysis nokkurra fjárglæframanna!

Þessu verður ekki breytt í dag. Hins vegar eru allir sérfræðingar sammála um að undirstöður íslensks samfélags eru traustar og allar forsendur eru til þess að við sem þjóð vinnum okkur upp úr þessari niðursveiflu. Það er jafnljóst að ekki er hægt að velta öllu tapi fjármálakerfisins beint yfir á almenning. Verðbólgusprengjan sem nú lendir á almenningi, íbúðareigendum og öðrum er ekki almenningi að kenna og það því beinlínis ósanngjarnt, óeðlilegt og rant að beita verðtryggingu með sama hætti og áður. Ef við íslendingar snúum bökum saman, þ.e.a.s. almenningur, stjórnmálamenn, fjármálamenn og aðrir þá verðum við ekki lengi í þessari niðursveiflu. Nú verðum við öll að klifra í bátinn.

ATOZ sf. Alhliða Viðskiptaráðgjöf | Borgartún 3 | 105 Reykjavík | Sími 771 4545