06. September 2010

Ró og Ráðleggingar

Nú þegar áhrif fjármálakrísunnar eru að leggjast á okkur Íslendinga af fullum þunga er það gríðarlega mikilvægt að fólk haldi ró sinni og yfirvegun í fjármálum. Landslagið í efnahagsmálum er nú þegar gjörbreytt frá því í síðustu viku. Þrír stærstu viðskiptabankarnir hafa allir hrunið og auk þess veit enginn hvað 1 evra eða 2 frankar kosta í íslenskum krónum talið.Það sem við hins vegar vitum fyrir víst að nú eru breyttir tímar og alltaf þegar stórfelldar þjóðfélagsbreytingar eiga sér stað fela þær í sér tækifæri. Við hjá ATOZ ráðleggjum því fólki að halda ró sinni og yfirvegun og að taka engar stórar ákvarðanir varðandi fjármál nema að ráðfæra sig við ÓHÁÐA sérfræðinga fyrst, ekki sérfræðinga sem hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Í Bretlandi t.d. er sérstök starfstétt (IFA) sjálfstæðra fjármálaráðgjafa. Sambærilegt fyrirkomulag er ekki að finna á Íslandi, en hér er hins vegar víða að finna fagmenn á þessu sviði, t.d. hjá ATOZ og fleiri fyrirtækjum.

ATOZ sf. Alhliða Viðskiptaráðgjöf | Borgartún 3 | 105 Reykjavík | Sími 771 4545